Handbolti

Þórir flaug með norsku stelpurnar í átta liða úrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þórir einbeittur á hliðarlínunni í kvöld.
Þórir einbeittur á hliðarlínunni í kvöld. vísir/afp
Norska kvennalandsliðið undir stjórn Þóris Hergeirssonar tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum á HM í kvöld með öruggum 31-23 sigri á Spánverjum.

Norska liðið tók frumkvæðið strax í upphafi og gaf það aldrei eftir. Sigurinn aldrei í hættu og Noregur spilar næst við Rússland.

Holland mátti hafa mikið fyrir því að leggja sterkt lið Japans í kvöld en það hafðist í framlengingu. Lokatölur 26-24 fyrir Holland.

Hollensku stúlkurnar mæta Tékklandi í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×