Innlent

Unnu þrekvirki í eldsvoðanum

Aron Ingi Guðmundsson skrifar
Húsnæði í eigu Hraðfrystihúss Gunnvarar á Ísafirði gjöreyðilagðist en Rauða húsinu var naumlega bjargað.
Húsnæði í eigu Hraðfrystihúss Gunnvarar á Ísafirði gjöreyðilagðist en Rauða húsinu var naumlega bjargað. Vísir/Ágúst Atlason
Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú eldsvoða, en útgerðarhúsnæði í eigu Hraðfrystihúss Gunnvarar á Ísafirði gjöreyðilagðist er það varð eldi að bráð síðastliðið föstudagskvöld. Bæjarstjóri Ísafjarðar segir gott að sjá fagmennsku og þekkingu slökkviliðsins skila sér.

„Húsið við hliðina, Rauða húsið svokallaða, var í mikilli hættu en með hárréttum viðbrögðum og áherslu tókst slökkviliðinu að bjarga því. Það hefði verið voðalegt ef eldurinn hefði náð í það hús – gamalt frystihús og verðmæti þar líka. Magnað að sjá fagmennsku og þekkingu skila sér með þessum hætti,“ segir Gísli Halldór Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.

Kristján G. Jóakimsson, framkvæmdastjóri framleiðslu og sölumála hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru, segir að betur hafi farið en á horfðist.



Gísli Halldór Halldórsson
„Húsið er gjörónýtt, það brann til kaldra kola. Sem betur fer var enginn í húsinu. Eins mikill eldur og þetta var þá er maður þakklátur fyrir að enginn skyldi skaðast.“

Kristján segir að dagleg starfsemi hafi verið í húsinu sem brann og því hafi þurft að finna annað húsnæði fljótt. „Við náðum samkomulagi við vélsmiðju á Ísafirði sem er hinum megin við götuna.“

Lögreglan á Vestfjörðum segir að úrvinnslu úr vettvangsgögnum ætti að ljúka á næstu dögum og þá verði vonandi hægt að segja til um eldsupptök.

„Vettvangsrannsókn lauk þarna á laugardagskvöldinu, svo höfum við verið að vinna úr gögnum síðan. Það voru þarna þrjár skemmur sem voru samliggjandi, við tókum ákvörðun um að jafna tvær þeirra við jörðu til að verja nærliggjandi hús og það tókst. Þriðja skemman stendur enn uppi en er gjörónýt,“ segir Hlynur Hafberg Snorrason yfirlögregluþjónn.

Hlynur segir að þeir aðilar sem komu að málum hafi unnið vel saman. „Slökkvilið Ísafjarðar fékk aðstoð frá slökkviliðinu á Bolungarvík og flugvellinum. Svo kom björgunarsveitin og aðstoðaði við að loka svæðinu, auk þess sem aukamannskapur var kallaður út hjá lögreglu. Aðstæður voru líka mjög góðar, nánast logn og þetta er fjarri íbúabyggð. Það má segja að þetta hafi verið eins lánlegt og hægt er að hugsa sér.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×