Menning

Allir kvaddir með himneskri mótettu Mozarts

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þótt sveitin kallist kvintett eru oft fleiri en fimm að spila.
Þótt sveitin kallist kvintett eru oft fleiri en fimm að spila.
Árvissir aðventutónleikar Blásarakvintetts Reykjavíkur og félaga, sem þeir nefna Kvöldlokkur á jólaföstu, verða haldnir í Fríkirkjunni við Tjörnina klukkan 20 annað kvöld, miðvikudag.

„Við leikum að venju hljómfagrar blásaraserenöður eða kvöldlokkur eftir meistara klassíska tímabilsins í tónlist,“ segir Einar Jóhannesson klarínettuleikari og nefnir til sögunnar tónskáldin Haydn, Mozart, Beethoven og fleiri spámenn. „Þetta er tónlist full af heiðríkju og gleði sem var gjarnan leikin utan dyra í lystigörðum borga eins og Vínar og Prag og þar fékk almenningur fyrst tækifæri til að njóta slíkrar tónlistar í fögru umhverfi.“

Kvöldlokkurnar í Fríkirkjunni eiga sinn fasta aðdáendahóp að sögn Einars. „Sumir finna ekki jólastemninguna og setja ekki upp útiljósaseríuna sína fyrr en aðventutónleikarnir okkar eru yfirstaðnir,“ segir hann og getur þess að í lok tónleikanna séu allir kvaddir með himneskri mótettu Mozarts, Ave verum corpus sem engan láti ósnortinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×