Körfubolti

Blikar fengu bikarmeistarana

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Breiðablik, topplið 1. deildar, mætir KR í undanúrslitum Maltbikars karla.
Breiðablik, topplið 1. deildar, mætir KR í undanúrslitum Maltbikars karla. vísir/eyþór
Fyrstu deildarlið Breiðabliks mætir ríkjandi bikarmeisturum KR í undanúrslitum Maltbikars karla.

Blikar slógu Hattarmenn út í 8-liða úrslitunum í gær og gátu var fengið erfiðari andstæðing í undanúrslitunum.

Í hinni undanúrslitaviðureigninni í karlaflokki mætast Haukar og Tindastóll.

Í Maltbikar kvenna drógust bikarmeistarar Keflavíkur gegn Snæfelli.

Skallagrímur, sem tapaði í úrslitaleiknum í fyrra, mætir Njarðvík sem kom mjög á óvart með því að komast í undanúrslitin.

Maltbikar karla:

KR - Breiðablik

Haukar - Tindastóll

Maltbikar kvenna:

Skallagrímur - Njarðvík

Keflavík - Snæfell




Fleiri fréttir

Sjá meira


×