Erlent

Frumkvöðlar netsins biðla til Bandaríkjastjórnar um að halda í nethlutleysi

Kjartan Kjartansson skrifar
Bretinn Tim Berners-Lee hefur verið nefndur faðir veraldarvefsins. Hann skrifaði meðal annars fyrsta vefvafrann.
Bretinn Tim Berners-Lee hefur verið nefndur faðir veraldarvefsins. Hann skrifaði meðal annars fyrsta vefvafrann. Vísir/AFP
Nokkrir af frumkvöðlum internetsins hafa ritað bandarískum þingmönnum opið bréf til varnar svonefnds nethlutleysis. Þeir hvetja Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna til þess að aflýsa fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu um að afnema reglur sem settar voru í forsetatíð Baracks Obama.

Stjórn Fjarskiptastofnunar Bandaríkjanna (FCC) ætlar að greiða atkvæði um afnám reglnanna á fimmtudag. Nethlutleysi felur í sér að fjarskiptafyrirtæki þurfi að veita öllum upplýsingum sem send eru um netið sömu meðferð.

Gagnrýnendur hafa varað við því að ef nethlutleysi verði afnumið geti fjarskiptafyrirtækin rukkað meira fyrir ákveðna netnotkun eins og samfélagsmiðla eða efnisveitur. Þau geti einnig dregið úr hraða ákveðinna gagnaflutninga. Afnám reglnanna muni brjóta gegn grundvallarhugmyndum um opið internet fyrir alla.

Aðsteðjandi ógn við internetið

Nú hafa nokkrir helstu forgöngumenn netsins skrifað opið bréf þar sem þeir hvetja FCC til þess að falla frá hugmyndum um afnám reglnanna. Á meðal þeirra sem skrifa undir bréfið eru Tim Berners-Lee, Vint Cerf og Steve Wozniak, annar stofenda Apple, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.

„Tæknilega röng tillaga FCC sem var unnin í flýti um að afnema varnir fyrir nethlutleysi án þess að neitt komi í staðinn er aðsteðjandi ógn við internetið sem við lögðum svo hart að okkur að skapa. Hana ætti að stöðva,“ segir í bréfinu sem var sent nokkrum nefndum öldungadeildar Bandaríkjaþings.

Repúblikanar sem stjórna FCC telja aftur á móti að afnám reglnanna muni auka samkeppni á fjarskiptamarkaði og að draga úr afskiptum ríkisvaldsins af netinu.

Afnám nethlutleysis hefur mætt verulegar mótspyrnu netnotenda, þar á meðal á samfélagsmiðlasíðum eins og Reddit. Gagnrýnendur afnáms benda á að á sumum stöðum í Bandaríkjunum sé aðeins eitt fjarskiptafyrirtæki á markaði. Íbúar þar geti því ekkert annað leitað ef þeir eru ósáttir við þjónustuna.


Tengdar fréttir

Afnema reglugerð um „hlutleysi á netinu“

Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna, FCC, hyggst afnema reglugerð um hlutleysi á netinu, svokallað "net neutrality“, sem komið var á í valdatíð Baracks Obama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×