Handbolti

Einn besti markvörður heims hættir í sumar og byrjar að aðstoða Patrek

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mattias Andersson á vafalaust eftir að reynast austurríska landsliðinu vel.
Mattias Andersson á vafalaust eftir að reynast austurríska landsliðinu vel. vísir/getty
Sænski markvörðurinn Mattias Andersson hefur samið við austurríska handboltasambandið um að gerast markvarðaþjálfari karlalandsliðsins næsta sumar. Hann mun einnig koma að þjálfun yngri landsliða Austurríkis.

Andersson leggur skóna á hilluna eftir tímabilið og fer þá beint í að aðstoða Patrek Jóhannesson, landsliðsþjálfara Austurríkis.

Austurrísku markverðirnir ættu að njóta góðs af þessari ráðningu en Andersson hefur lengi verið í hópi bestu markvarða heims.

Andersson hefur leikið með Flensburg frá árinu 2011. Áður lék hann með Ystads, Drott, Barcelona, Kiel og Grosswallstadt. Andersson hefur fjórum sinnum orðið Þýskalandsmeistari á ferlinum og tvisvar sinnum unnið Meistaradeild Evrópu.

Austurríki verður með á EM í Króatíu í janúar þar sem liðið er með Frakklandi, Hvíta-Rússlandi og Noregi í riðli. Austurríki heldur EM 2020 með Noregi og Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×