Lífið

Tárvotur Jimmy Kimmel mætti með son sinn í þáttinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kimmel þakkaði starfsfólki sjúkrahússins í Los Angeles.
Kimmel þakkaði starfsfólki sjúkrahússins í Los Angeles.
Jimmy Kimmel tók sér viku frá frá sjónvarpi á dögunum og var ástæðan fyrir því að sonur hans gekkst undir stóra hjartaaðgerð.

Í þeirri viku voru aðeins gestaþáttastjórnendur og vildu margir meina að þeir hafi staðið sig vel.

Í gær mætti Kimmel með Billy Kimmel í þáttinn og þakkaði hann öllu starfsfólki sjúkrahússins í Los Angeles fyrir þá meðferð sem sonur hans fékk, og hefur fengið síðustu mánuði.

Kimmel var í vandræðum með tilfinningar sínar í þættinum og táraðist reglulega eins og sjá má hér að neðan.  Kimmel tjáði sig einnig um sjúkratryggingarkerfið í Bandaríkjunum sem hann telur nokkuð gallað.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×