Innlent

Tvær lægðir á leiðinni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lægðin sem lætur á sér kræla eftir helgi verður hlýrri og meiri um sig.
Lægðin sem lætur á sér kræla eftir helgi verður hlýrri og meiri um sig. VÍSIR/VILHELM
Veðurstofan segir vissara fyrir fólk að fylgjast vel með þróun veðurspáa næstu daga. Tvær lægðir séu á leiðinni; önnur láti finna fyrir sér á laugardag en hin eftir helgi. Seinni lægðin verður hlýrri og meiri um sig en sú fyrri. Því ættu landsmenn að varann á.

Það má búast við kólnandi veðri í dag, slydduéljum og éljum með norðaustan strekkingi víða á landinu, en suðvestantil verður bjarviðri - „eins og svo oft í norðaustanátt,“ að sögn Veðurfræðings. Hitinn verður um og undir frostmarki. Það muni svo hvessa nokkuð í Öræfum í kvöld og nótt verður byljótt við fjöll.

Á sama tíma gætu él stungið sér niður og takmarkað skyggni nokkuð. Eins er viðbúið að um leið og frysti norðan og austanlands nái skafrenningur sér aftur á strik með tilheyrandi vetraraðstæðum til ferðalaga.

Þá er útlit fyrir svipað veður með frosti og norðlægum áttum fram á laugardag en þá láta fyrrnefndar lægðir á sér kræla.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Norðan 5-13 og dálítil él með norður og austurströndinni en léttskýjað sunnan heiða. Frost víða 1 til 7 stig. 

Á föstudag:

Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og bjartviðri, en skýjað með köflum og él við norður- og austurströndina. Harðnandi frost, allt að 15 stig inn til landsins um kvöldið. 

Á laugardag:

Suðaustanátt með hlýnandi veðri og rigningu eða slyddu við suðvesturströndina en snjókomu til fjalla. Bjartviðri víðast hvar norðan og austantil og áfram frost. Snýst í suðvestlæga átt með snjókomu og síðar éljum S- og V-til um kvöldið og þykknar upp austantil. Hiti kringum frostmark. 

Á sunnudag:

Suðvestanátt með éljum um landið vestanvert, en léttir til austanlands. Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og hlýnar seint SV-til um kvöldið. 

Á mánudag:

Útlit fyrir hvassa og hlýja sunnanátt með talsverðri rigningu víða um land en suðvestan hvassviðri með skúrum vestantil síðdegis. Hiti 2 til 8 stig síðdegis. 

Á þriðjudag:

Útlit fyrir suðvestlæg átt með skúrum og síðar éljum á vestanverðu landinu en léttir til eystra. Kólnar í veðri og frystir inn til landsins um kvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×