Innlent

Taka niður öryggisgirðingar milli akbrauta

Gissur Sigurðsson skrifar
Miklabraut milli Snorrabrautar og Lönguhlíðar.
Miklabraut milli Snorrabrautar og Lönguhlíðar. Vísir/stefán
Starfsmenn Vegagerðarinnar munu í dag vinna að því að taka niður öryggisgirðingar á milli akbrauta á Miklubraut, eða frá Snorrabraut til austurs í átt að Lönguhlíð.

Vegna þess verður hraði um vinnusvæðið lækkaður niður í 50 kílómetra og eru vegfarendur beðnir að virða merkingar.

Þessar girðingar þykja hættulegar, sem sannaðist nýverið þegar bíl var ekið utan í eina slíka á Miklubraut til móts við Skeifuna með þeim afleiðingum að ökumaðurinn kastaðist út og hafnaði á öryggisgirðingu, þar sem hann beið bana.


Tengdar fréttir

Banaslys á Miklubraut

Banaslys varð á Miklubraut við Réttarholtsveg á níunda tímanum í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×