Góð endurkoma dugði ekki til hjá Alfreð og félögum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alfreð í leik með Augsburg.
Alfreð í leik með Augsburg. Vísir/Getty
Alfreð Finnbogason og félagar í þýska liðinu Augsburg urðu að sætta sig við 3-2 tap gegn Schalke í kvöld.

Schalke komst í 2-0 í leiknum en Augsburg náði að jafna. Schalke skoraði svo sigurmark einni mínútu fyrir leikslok.

Alfreð var í byrjunarliði Augsburg sem fyrr en fór af velli á 72. mínútu.

Robert Lewandowski tryggði Bayern 1-0 sigur á Köln og Werder Bremen varð að sætta sig við 1-0 tap gegn Bayer Leverkusen.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira