Fimmtándi sigur City í röð | Rooney tryggði Everton sigur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
David Silva fagnar marki í kvöld.
David Silva fagnar marki í kvöld. Vísir/Getty
Topplið Man. City missteig sig ekki gegn botnliði Swansea í kvöld og raðaði inn mörkum eins og svo oft áður í vetur.

Lokatölur 0-4 þar sem David Silva skoraði tvö mörk og þeir Kevin de Bruyne og Sergio Aguero komust einnig á blað.

City heldur því ellefu stiga forskoti á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en liðið var að vinna sinn fimmtánda leik í röð sem er met.

Wayne Rooney spilaði sinn 100. leik fyrir Everton í kvöld og hélt upp á það með því að tryggja liðinu sigur, 0-1, gegn Newcastle.

Southampton sá aldrei til sólar gegn Leicester og varð að sætta sig við 1-4 tap. Shinji Okazaki skoraði tvívegis fyrir Leicester og Riyadh Mahrez og Andy King voru einnig á skotskónum. Maya Yoshida skoraði mark Southampton í leiknum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira