Markastíflan brast hjá Lukaku | Sjáðu markið

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Man. Utd vann 1-0 sigur á Bournemouth í kvöld en það var lítill glæsibragur á leik United-liðsins í rigningunni á heimavelli sínum.

Það var Romelu Lukaku sem skoraði eina mark leiksins með skalla í fyrri hálfleik. Hann hefur átt erfitt uppdráttar gegn betri liðum deildarinnar en virðist skora gegn öllum lakari liðunum.

Bournemouth var ekki fjarri því að fá eitthvað úr leiknum enda sótti liðið talsvert og fékk sín færi. David de Gea var venju samkvæmt flottur í markinu og fékk ekki mark á sig.

Man. Utd því enn í öðru sæti einum ellefu stigum á eftir Man. City. Bournemouth er í fjórtánda sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira