Arsenal náði ekki að skora | Spurs vann Brighton

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik West Ham og Arsenal í kvöld.
Úr leik West Ham og Arsenal í kvöld. Vísir/Getty
David Moyes er að fara að ágætlega af stað með West Ham en hann nældi í stig með sínu liði gegn Arsenal í kvöld. Markalaust í leik liðanna í kvöld.

Stigið vel þegið hjá West Ham sem er engu að síður í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Arsenal er í sjöunda sæti með 30 stig eða stigi minna en Burnley, Liverpool og Tottenham.

Tottenham vann einmitt fínan sigur á Brighton, 2-0, þar sem Serge Aurier og Heung-Min Son skoruðu mörk Tottenham í leiknum.

Spurs skaust þar með upp í fjórða sæti deildarinnar en Brighton er í þrettánda sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira