Bíó og sjónvarp

Nýjasta mynd Clint Eastwood skartar alvöru hetjum í aðalhlutverki

Birgir Olgeirsson skrifar
Myndin segir frá því þegar þrír Bandaríkjamenn komu í veg fyrir hryðjuverkaárás í lest.
Myndin segir frá því þegar þrír Bandaríkjamenn komu í veg fyrir hryðjuverkaárás í lest.
Stikla hefur litið dagsins ljós úr nýjustu kvikmynd Óskarsverðlaunahafans Clint Eastwood sem frumsýnd verður í febrúar á næsta ári. Myndin segir frá þegar þrír Bandaríkjamenn komu í veg fyrir hryðjuverkaárás í lest í Frakklandi í ágúst árið 2015.

Eastwood fór heldur óvenjulega leið við að færa þessa sögu yfir á hvíta tjaldið því hann ákvað að fá hetjurnar sjálfar sem komu í veg fyrir árásina til að leika sjálfa sig í þessari sannsögulegu mynd.

Mennirnir eru Anthony Sadler, Alek Skarlatos sem var í þjóðvarðliði Bandaríkjanna og Spencer Stone sem var í flugher Bandaríkjanna.

Myndin segir frá lífshlaupi þeirra áður en að árásinni sjálfri kemur.

21. ágúst árið 2015 fór meðlimur hryðjuverkasamtakanna ISIS um borð í lestina, sem var á leið Brussel í Belgíu til Parísar í Frakklandi. Sá var sagður með skotfæri til að myrða rúmlega 500 manns. Hann ruddist út af salerni lestarinnar tilbúinn að myrða farþega þegar Bandaríkjamennirnir þrír létu til skara skríða og afvopnuðu hann.

Myndin ber heitið The 15:17 To Paris og verður sem fyrr segir frumsýnd í febrúar næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×