Fótbolti

Doumbia samdi við Maribor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Doumbia í leiknum gegn Maribor síðasta sumar.
Doumbia í leiknum gegn Maribor síðasta sumar. vísir/andri
Varnarmaðurinn sterki Kassim Doumbia er búinn að semja við slóvenska meistaraliðið Maribor sem sló FH út úr Meistaradeildinni í sumar.

Doumbia skrifaði undir þriggja ára samning við þetta sterka lið sem fór alla leið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en endaði í síðasta sæti síns riðils.

Forráðamenn Maribor hafa þó augljóslega heillast af Doumbia í rimmunni gegn FH sem Maribor vann, 2-0.

Doumbia spilaði í fjórar leiktíðir með FH og skoraði 11 mörk í 83 leikjum með Hafnarfjarðarliðinu. Hann er 27 ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×