Handbolti

Holland í undanúrslit á HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í kvöld.
Úr leik liðanna í kvöld. vísir/afp
Holland varð í kvöld þriðja liðið sem tryggir sér sæti í undanúrslitum á HM kvenna í handbolta.

Hollendingar unnu þá sætan sigur, 30-26, á Tékkum í hörkuleik. Holland var einu marki yfir í hálfleik, 17-16.

Tékkarnir önduðu ofan í hálsmálið á hollenska liðinu lengst af síðari hálfleik en sterkur lokakafli skilaði hollenska liðinu góðum sigri.

Holland mætir annað hvort Noregi eða Rússlandi í undanúrslitaleiknum. Noregur og Rússland mætast síðar í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×