Innlent

Grunaður um tilraun til manndráps: Grunur um að maðurinn sé ekki sá sem hann segist vera

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Maðurinn var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðar með vísan til almannahagsmuna.
Maðurinn var fyrst úrskurðaður í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna en síðar með vísan til almannahagsmuna. Vísir/Heiða
Lögreglan hefur grun um að erlendur karlmaður sem grunaður er um tilraun til mandráps með því að hafa ráðist á fyrrverandi kærustu sína aðfaranótt 3. desember sé ekki sá sem hann hafi kvaðst vera. Lögreglan hefur undir höndum tvö vegabréf í eigu mannsins, annað þeirra er falsað og hitt gefa þau mismunandi upplýsingar um nafn, fæðingardag og upprunaland mannsins.

Maðurinn er með dvalarleyfi hér á landi og er nú til skoðunar hjá Útlendingastofnun að afturkalla dvalarleyfi mannsins.

Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar sem staðfesti áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum í dag, eins og Vísir greindi frá.

Þar segir einnig að tvö vitni séu að árásinni. Annað vitnið hafi heyrt manneskju öskra „get ekki andað, get ekki andað“ og „hann var að reyna að drepa mig – hann var að kyrkja mig.“ Annað vitni kveðst hafa séð stúlku sem hafi átt erfitt með að ná andanum.

Gögnin renni stoðum undir framburð konunnar

Konan var með marga höggáverka á ýmsum hlutum líkamans samkvæmt áverkavottorði réttarmeinafræðings.

Á hlið hálsins, einkum hægra megin hafi greinst rauðar litabreytingar á hörundi, sem „má túlka sem kyrkingarummerki, sem líklegast samsvara stöðu upphandleggs og framhandleggs við kyrkingartak.“

Lögreglan kom á vettvang í Holtunum laust eftir klukkan 5 þann 3. desember og stúlkan tók þar á móti þeim. Að sögn lögreglu var hún í miklu uppnámi og tjáði lögreglumönnum að maðurinn hefði kyrkt hana þangað til hún hafi misst meðvitund. Maðurinn hafi gefið sig fram á vettvangi og í kjölfarið verið handtekinn.

Lögreglan tók tvær skýrslur af konunni, á slysadeild og hjá lögreglu. Þar lýsti hún atburðum með sama hætti, maðurinn hafi haldið henni í kyrkingartaki þar til hún hafi misst meðvitund. Hafi hún kveðið kærða hafa sagst ætla að drepa hana í sama mund og hann hafi tekið hana hálstaki.

Maðurinn neitar sök en gögn málsins eru talin renna stoðum undir framburð konunnar.

Dóm Hæstaréttar má lesa hér.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×