Lífið

Svitnuðu við að kaupa efnið í gripina

Guðný Hrönn skrifar
Orri og Helga afhjúpa nýju gripina í verslun sinni á Skólavörðustíg 17a í kvöld klukkan 17-20.
Orri og Helga afhjúpa nýju gripina í verslun sinni á Skólavörðustíg 17a í kvöld klukkan 17-20. VÍSIR/ANTON BRINK
Skartgripafyrirtækið Orrifinn fagnar fimm ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni ákváðu skartgripahönnuðirnir Orri Finnbogason og Helga G. Friðriksdóttir að láta draum rætast og smíða viðhafnarútgáfur af nokkrum gripum úr 18 karata gulli og þekja þá demöntum.

„Okkur hefur svo ofboðslega lengi dreymt um að smíða meira úr gulli. En sökum kostnaðar þá hefur það ekki endilega alltaf verið sniðugasta leiðin til að fara. En í tilefni af fimm ára afmælinu þá ákváðum við að taka þetta alla leið,“ útskýrir Helga sem viðurkennir að hráefnið í skartgripina hafi kostað sitt.

„Maður náttúrulega svitnar þegar maður kaupir efnið og er hræddur um að setja sig á hausinn. Það er mjög óþægileg tilfinning,“ segir Helga og skellir upp úr.

„Þetta er eitthvað sem ég hefði ekki treyst mér til að gera fyrr. Þegar við vorum að byrja að byggja fyrirtækið upp þá hefði maður ekki þorað að fjárfesta svona mikið í efniskaup.“

Eins mikið af demöntum og hægt er
18 karata gull og demantar eru í aðalhlutverki í nýjustu línunni frá Orrifinn.VÍSIR/ANTNON BRINK
Beðin um að lýsa nýja skartinu nánar segir Helga: „Við völdum þá skartgripi frá okkur sem okkur hefur þótt standa upp úr á þessum fimm árum. Og við tókum þá gripi og smíðuðum þá úr 18 karata gulli. Svo setjum við bara eins mikið af demöntum og við getum í hvert og eitt stykki. Mest náðum við að setja 39 demanta í einn grip,“ segir Helga um nýja viðhafnar-skartið sem verður til í takmörkuðu upplagi núna fyrir jólin. Það verður svo afhjúpað í afmælisboði Orra­finn í kvöld.

Þess má geta að Orri lærði demantaísetningu á sínum yngri árum í New York. „Okkur finnst þetta líka vera smá óður til fortíðar Orra sem vann við þetta í New York. Hann flutti þangað sem unglingur með ekkert nema bakpoka nánast og endaði nokkuð tilviljunarkennt á að vinna sem demantaísetjari hjá stóru demantafyrirtæki á Manhattan. Það er því gaman að nýta þá dýrmætu reynslu og mikil forréttindi að geta sett demanta í sjálf.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×