Lífið

Svona fagnar 16 ára drengur inngöngu í Harvard

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ayrton Little er greinilega nokkuð klár ungur drengur.
Ayrton Little er greinilega nokkuð klár ungur drengur.
Ayrton Little er sextán ára ungur maður frá Louisiana í Bandaríkjunum og er hann að vekja mikla athygli á veraldarvefnum.

Ástæðan fyrir því er að hann er kominn inn í Harvard og tísti hann myndbandi í vikunni þar sem sjá má viðbrögð hans og vina þegar ljóst var að þessi drengur væri kominn inn í einn besta háskóla heims, og það aðeins sextán ára.

Myndbandið gengur nú eins og eldur í sinu um netheima og kannski eðlilega, þar sem viðbrögðin eru vægast sagt rosaleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×