Erlent

Biden hughreysti Meghan McCain vegna heilaæxlis föður hennar

Atli Ísleifsson skrifar
Joe Biden og Meghan McCain ræddu saman um krabbameinið og föður hennar í þættinum The View.
Joe Biden og Meghan McCain ræddu saman um krabbameinið og föður hennar í þættinum The View.
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, hughreysti og gaf sjónvarpsþáttastjórnandanum Meghan McCain, dóttur öldungadeildarþingmannsins John McCain, ráðleggingar í spjallþættinum The View vegna þess krabbameins sem John McCain var greindur með í sumar.

Sonur Biden, Beau Biden, greindist á sínum tíma með sama krabbamein í heila og McCain greindist með í sumar. Beau Biden lést árið 2015.

Meghan McCain er einn stjórnenda þáttarins sem er á dagskrá ABC og táraðist þegar hún bað Biden um ráðleggingar hvernig best væri að fást við sjúkdóminn.

Biden sagði svo frá framförum í læknavísindum á sviði krabbameinsrannsókna og að McCain ætti ekki að gefa upp vonina. Demókratinn Biden sagði jafnframt að þrátt fyrir að hann og Repúblikaninn John McCain væru ekki alltaf sammála þá væri McCain einn af hans bestu vinum.

Sjá má innslagið að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×