Fótbolti

Viðar Örn hetjan í bikarúrslitaleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Viðar með bikarinn í kvöld.
Viðar með bikarinn í kvöld. mynd/instagram-síða Viðars
Viðar Örn Kjartansson tryggði Maccabi Tel-Aviv bikarmeistaratitilinn í Ísrael í kvöld.

Hann skoraði þá eina mark úrslitaleiksins gegn Hapoel Be'er Sheva sjö mínútum fyrir leikslok.

Þetta var sjöunda mark Viðars Arnar á tímabilinu.

Það er væntanlega mikil gleði hjá stuðningsmönnum Maccabi í alla nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×