Körfubolti

Hlynur: Hefðum unnið ef ég hefði spilað betur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hlynur Bæringsson hefur spilað betur.
Hlynur Bæringsson hefur spilað betur. vísir/eyþór
„Þetta var mjög dapurt bara hjá okkur, í seinni hálfleik. Þeir komu miklu kröftugri og áttu meira inni, þess vegna er þetta grautfúlt því við gerðum margt fínt í fyrri hálfleik,“ sagði Hlynur Bæringsson eftir tap Stjörnunnar gegn Tindastól í Domino's deild karla í körfubolta í kvöld.

Hann var stundum nokkuð ósáttur með dómara leiksins, en sagði það þó meira hafa verið pirringur sem hefði átt að beinast að sjálfum sér.

„Ætli maður sé ekki frekar pirraður út í eitthvað annað en sjálfan sig þegar maður er að spila illa eins og ég var að gera. Dómararnir voru ekkert vondir við mig.“

„Mér fannst þessi kraftur í þeim,“ svaraði Hlynur aðspurður hvað hafi ráðið úrslitum.

„Ef maður á að vera alveg hreinsskilinn þá ef ég hefði spilað betur þá hefðum við getað unnið. En við vinnum þetta saman og töpum þessu saman. En lífið heldur áfram og við verðum betri eftir áramót.“

Hlynur hafði þó ekki miklar áhyggjur af því að tapið myndi eyðileggja jólahald hjá honum, enda tapað nokkrum körfuboltaleikjum áður á ferlinum. Hann segir það helst vera kraftin sem vanti í þeirra leik.

„Nokkrir leikir sem hefðu getað dottið okkar megin. En það eru nokkrir menn hjá okkur sem eru að standa upp. En við getum spilað betur varnarlega, ef ég á að nefna eitthvað eitt,“ sagði Hlynur Bæringsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×