Körfubolti

Veikt barn bað LeBron um að troða yfir Lonzo Ball

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
„Þú fórst alltaf frá,“ gæti LeBron James verið að segja við Lonzo Ball.
„Þú fórst alltaf frá,“ gæti LeBron James verið að segja við Lonzo Ball. vísir/getty
LeBron James fékk óvenjulega bón frá ungum stuðningsmanni þegar hann og félagar hans í Cleveland Cavaliers heimsóttu spítala í borginni í gær.

Ungi strákurinn, sem heitir Andrew, bað James nefnilega um að troða yfir Lonzo Ball, nýliða Los Angeles Lakers sem Cleveland mætti þá um kvöldið.

James tók vel í bónina en sagði að Ball myndi eflaust forða sér frá þegar hann hefði sig til flugs.

James stóð ekki við loforðið því engin af fjórum troðslum hans í leikjum var yfir Ball.

Andrew hefur þó eflaust geta glaðst yfir sigri Cleveland, 121-112. James fór mikinn í leiknum; skoraði 25 stig, tók 12 fráköst og gaf 12 stoðsendingar.

Ball var heldur ekki langt frá því að ná þrefaldri tvennu. Nýliðinn skoraði 13 stig, tók átta fráköst og gaf 11 stoðsendingar.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×