Lífið

Íslenskir gangaverðir senda frá sér sveittasta jólalag ársins

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Sveittir gangaverðir bjóða upp á titil lagsins á þessu fína laufabrauði.
Sveittir gangaverðir bjóða upp á titil lagsins á þessu fína laufabrauði.
Jóla- og rappsveitin Sveittir gangaverðir heldur áfram í endurkomu sinni og senda í dag frá jólalag. Sveitin, sem blaðamaður leyfir sér að kenna við jólin, varð til í Laugarnesinu á milli jóla og nýárs árið 1999.

Þá voru strákarnir á öðru ári í menntó, hluti sveitarinnar var í MH en hinn í MS. Stór hluti sveitarinnar æfði saman körfubolta í KR en margir eru þeirrar skoðunar að rapp og körfubolti eigi jafnvel saman og malt og appelsín.

„Sveittir eru alltaf bestir um jólin, þegar fer að nálgast hátíðarnar,“ sagði einn af forsprökkunum Andri Fannar Ottósson í viðtali við Vísi fyrir sléttu ári. Þá sendi sveitin frá sér Arnalds en lagið í ár heitir Jóló. 

Lagið er fyrir alla sem dýrka og dá jól, sem eru búin að fá nóg, þau sem aldrei fá nóg, þau sem eru búin að sjá nóg af bulli, fyrir alla sem fara ekki nógu oft á krá, þau sem fíla samt að fá sér í tá, þá sem eru búin að gá nóg í skóinn og undir tréð en samt ekki fengið að sjá nóg. Og fleiri.

Jóló

hvað ertu að dunda beibí jóló

viltu ekki koma með á mokka beibí jóló

það er kominn desember 

og þú ert ekki hér með mér. 

þú nikkaðir til mín við austurver 

eins og ég væri bara hver sem er. 

en ég er ekki hver sem er. 

ég er ekki tómur, ég er ekki square. 

eins og hörund mitt væri gler 

þú sást í mér hluti sem enginn sér. 

en nú er kominn desember. 

snjókorn falla og allt það: svo fer sem fer. 

þú varst minn sonny, ég var þín cher 

ég trúi á líf eftir ást. 

og næst þegar ég sé þig við austurver 

mun ég taka í höndina á þér, 

brosa og óska þér 

og þínum alls hins besta yfir jólin.

hvað ertu að dunda beibí jóló 

viltu ekki koma með á mokka beibí jóló

jólin eru gengin í garð 

en jólagjafalistin hjá mér er tómur. 

þar er ekkert að finna nema þig, 

bara við tvö já bara við tvö. 

þú ert svo heit já eins og miðstöð 

í köldum bíl í desember 

svo ég þarf ekki að skafa, 

hahahahaha. 

hjartað í mér er ekki lengur hélað 

það satt og héðan af 

þarf ég ekki annað en að hugsa um þig 

og ég bráðna eins og aðventukerti, hey. 

málum bæinn rauðan þó jólin séu hvít. 

sveittir gangaverðir gefa skít 

í jólastressið leyfðu mér að taka af þér dressið. 

jóló beibí jólo langt fram á nótt.

hvað ertu að dunda beibí jóló 

viltu ekki koma með á mokka beibí jóló

Þetta er fyrir alla sem dýrka og dá jól 

fyrir alla sem eru bún að fá nóg 

þau sem samt aldrei fá nóg 

sem eru búin að sjá nóg... af bulli 

fyrir alla sem fara ekki á krá nóg 

sem fíla samt að fá sér í tá though 

fyrir all sem eru búnir að gá nóg 

...undir tréð ..... í skóinn 

og samt ekki fengið að sjá nóg, ekki neitt vá hvað mér brá yo 

fyrir alla sem ekki með nóg saldó 

inn á kontó 

og fá ekkert jólókortó 

þetta er fyrir þá ýó 

jóló

hvað ertu að dunda beibí jóló 

viltu ekki koma með á mokka beibí jóló


Tengdar fréttir

Sveittir gangaverðir snúa aftur og rappa um „The Arnalds“

Rappsveitin hafa sent frá sér lagið Arnalds, fimmtán árum eftir að sveitin sló gegn með lögum á borð við Boogie Boggie, Dansa út úr flippað og Hustler. Út er komið lagið Arnalds og fleiri lög eru væntanleg.

Sífellt meiri tengsl rapps og íþrótta

Skilin á milli tónlistar og íþrótta verða sífellt óskýrari, sér í lagi þegar rapparar eiga í hlut. Vinskapur hefur skapast milli fremstu íþróttamanna landsins og helstu rappara þjóðarinnar. Vísir leiðir lesendur í gegnum sögu tengslanna með tilheyrandi tónaveislu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×