Özil tryggði Arsenal sigur með frábæru marki

Dagur Lárusson skrifar
Özil skoraði frábært mark
Özil skoraði frábært mark vísir/getty
Arsenal og Newcastle mættust á Emirates vellinum í Lundúnum í dag en hvorugu liði hefur gengið vel upp á síðkastið.

Fyrir leikinn var Arsenal í 7.sæti með 30 stig á meðan Southampton voru komnir í neðri hluta deildarinnar.

Það var Arsenal sem byrjaði leikinn betur og og sóttu stíft fyrstu mínúturnar og það skilaði sér á 21.mínútu þegar Mesut Özil skoraði stórglæsilegt mark. Þetta reyndist eina mark fyrri hálfleiksins og staðan því 1-0 í hálfleik.

Heimamenn héldu áfram að sækja í seinni hálfleiknum en náðu ekki að skora annað mark og því voru lokatölur 1-0.

Eftir leikinn er Arsenal komið með 33 stig og í 4.sæti deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira