Alonso tryggði Chelsea sigur

Dagur Lárusson skrifar
Marcos Alonso fagnar í dag.
Marcos Alonso fagnar í dag. vísir/getty
Chelsea og Southampton mættust í ensku úrvaldsdeildinni í dag en bæði lið áttu leik í miðri viku.

Það voru heimamenn í Chelsea sem voru sterkari aðilinn í þessum leik en liðsmenn Southamton vörðust þó vel og stefndi í að fyrri hálfleikurinn yrði markalaus en þá steig Marcos Alonso fram og skoraði og því fór Chelsea með forystuna í hlé.

Það var fátt um fína drætti í seinni hálfleiknum en hvorugu liðinu tókst að skora og því var lokastaðan 1-0 fyrir Chelsea sem eru nú í 3.sæti með 38 stig.

Önnur úrslit:

Arsenal 1-0 Newcastle

Brighton 0-0 Burnley

Watford 1-4 Huddersfield Town

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira