Handbolti

Noregur í úrslitaleikinn með stæl

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Norsku stelpurnar fagna í dag.
Norsku stelpurnar fagna í dag. vísir/afp
Þórir Hergeirsson er kominn með norska kvennalandsliðið í úrslit á HM eftir magnaðan 32-23 sigur á Hollandi í undanúrslitaleik í dag.

Ótrúlegur fyrri hálfleikur norska liðsins laðgi grunninn að sigrinum. Norsku stúlkurnar skelltu í lás strax í upphafi og náði 9-1 forskoti. Það bil náði hollenska liðið aldrei að brúa.

Munurinn var sjö mörk í hálfleik, 17-10, en þrátt fyrir fína baráttu hollenska liðsins þá dugði það ekki til. Norska liðið var einfaldlega of gott og er verðskuldað komið í úrslitaleikinn. Nora Mörk var valin besti maður leiksins en hún átti enn einn stórleikinn fyrir norska liðið.

Andstæðingur Noregs í úrslitaleiknum verður Svíþjóð eða Frakkland en leikur þeirra fer fram á eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×