Innlent

Íbúar hvetja bæinn í vegadeilu Garðbæinga og Hafnfirðinga

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Vegurinn umdeildi hefur tryggt Hafnfirðingum við Heiðvang styttri leið í gegn um Garðabæ.
Vegurinn umdeildi hefur tryggt Hafnfirðingum við Heiðvang styttri leið í gegn um Garðabæ. Vísir/eyþór
Íbúar í Prýðishverfi í Garðabæ hvetja bæjaryfirvöld til dáða í deilum við nágranna sína Hafnarfjarðarmegin við gamla Álftanesveginn sem kært hafa ákvörðun um lokun vegarins.

Hjón sem búa við Heið­vang í Hafnarfirði kærðu Garðabæ vegna áformanna um að loka vegtengingu. Eins og fram kom í Fréttablaðinu 20. nóvember telja hjónin breytinguna verulega íþyngjandi fyrir íbúa hverfis síns.

„Þetta veldur því að umferð um hverfi kæranda verður þyngri og erfiðari þar sem lokað er á mikilvæga tengingu milli samfélaga,“ segir í kæru hjónanna.



Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, á að annast deilumál um lokun Hafnarfjarðartengingar gamla Álftanesvegarins.vísir/anton brink
Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði styðja málstað hjónanna við Heiðvang en bæjaryfirvöldum í Garðabæ hefur hins vegar borist áskorun með undirskriftum 56 Garðbæinga sem búa í Prýðishverfi.

„Viljum við undirritaðir fasteignaeigendur og íbúar við gamla Álftanesveginn skora á bæjarstjórn að hvika hvergi frá samþykktum um lokun vegarins,“ segir í bréfi Prýðishverfinga. Segja þeir að styr hafi staðið um veginn út á Álftanes um árabil en ágreiningslaust hafi verið að vegurinn væri stórhættulegur þar sem hann var.

„Hinn gamli Álftanesvegur stendur enn óbreyttur og er enn þá stórhættulegur vegna mikillar umferðar og hraðaksturs. Er þar fyrst og fremst um að kenna mikilli umferð um veginn til Hafnarfjarðar. Af þessu skapast stórhætta, ekki aðeins fyrir börn að leik í hverfinu heldur einnig fyrir gangandi vegfarendur og aðra umferð, en sjö íbúagötur tengjast veginum,“ segir í áskorunarbréfinu.

Taka íbúarnir 56 fram að þeir hafi reist eða keypt hús á þeirri forsendu að gildandi skipulag og deiliskipulagstillögur stæðust, þar með talið að gamli Álftanesvegurinn yrði lokaður til vesturs. „Um leið og við skorum á bæjaryfirvöld að fylgja eftir skuldbindingum Garðabæjar og gildandi skipulagi viljum við krefjast þess að veginum verði lokað hið fyrsta,“ segir í áskorun Garðbæinga.

Bæjarráð fól Gunnari Einarssyni bæjarstjóra meðferð hvatningarbréfsins en kæra hjónanna í Heið­vangi er til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×