Fótbolti

Alfreð lék eftir afrek Miroslav Klose í dag

Alfreð skorar fyrsta mark leiksins í dag.
Alfreð skorar fyrsta mark leiksins í dag. Vísir/getty
Alfreð Finnbogason skoraði í dag þrennu í annað skiptið á tímabilinu en þetta var einnig í annað skiptið á tímabilinu sem hann skorar á fyrstu mínútu leiksins.

Líkt og fjallað hefur verið um á Vísi var Alfreð hetja Augsburg í 3-3 jafntefli gegn Freiburg í dag.

Skoraði hann mark á 1. mínútu leiksins og bætti síðar við tveimur mörkum í uppbótartíma undir lok leiksins.

Með því varð hann fyrsti leikmaðurinn í tólf ár í þýsku deildinni sem skorar oftar en einu sinni á tímabili mark á fyrstu mínútu leiksins.

Tókst Miroslave Klose það síðast er hann lék með Werder Bremen tímabilið 2005 til 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×