Fótbolti

Real Madrid heimsmeistari félagsliða í þriðja sinn á fjórum árum

Ronaldo fagnar marki sínu í dag.
Ronaldo fagnar marki sínu í dag. Vísir/getty
Spænska liðið Real Madrid varði titil sinn í úrslitaleik heimsmeistarakeppni félagsliða í knattspyrnu nú rétt í þessu með 1-0 sigri á Gremio.

Leikið var í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en með sigrinum í dag komst Real Madrid upp að hlið Barcelona sem sigursælustu lið keppninnar.

Er um að ræða keppni þar sem bestu lið hverrar álfu fá þátttökurétt en þetta var fjórtánda ár keppninnar.

Skoraði Cristiano Ronaldo eina mark leiksins á 53. mínútu, beint úr aukaspyrnu, en þetta var 7. mark hans í sögu keppninnar og er hann orðinn markahæstur í sögu hennar.

Dugaði það Madrídingum til sigurs sem hafa nú unnið keppnina þrjú skipti af síðustu fjórum en erkifjendur þeirra í Barcelona unnu titilinn árið 2015.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×