Erlent

Sex létust í fjöldaárekstri í Bretlandi

Lögregla segir að slysið hafi verið mjög alvarlegt.
Lögregla segir að slysið hafi verið mjög alvarlegt. Vísir
Sex eru látnir og minnst einn alvarlega slasaður eftir alvarlegan árekstur þriggja bíla í Birmingham-borg í Bretlandi.

BBC greinir frá því að áreksturinn hafi orðið um klukkan eitt í nótt. Á Twitter-reikningi lögreglunnar í Birmingham segir að aðstæður á vettvangi hafi verið mjög krefjandi og að áreksturinn hafi verið mjög alvarlegur.

Tildrög slyssins eru óljós en í tilkynningu sjúkraflutningaþjónustunnar í Birmingham segir að alls sex bílar hafi verið í árekstrinum, þar af þrír sem komu aðvífandi á slysstað en ökumenn bílanna þriggja hafi reynt að komast hjá því að aka á hina bílana sem lentu í árekstrinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×