Menning

Ræðir skuggahliðar íslenskra jólalaga í breska ríkisútvarpinu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Andri Snær Magnason, rithöfundur.
Andri Snær Magnason, rithöfundur. Vísir/Anton Brink
Andri Snær Magnason rithöfundur mun ræða hinar myrku hliðar íslenskra jólalaga og -sagna á sjónvarpsstöðinni Radio 4, sem heyrir undir breska ríkisútvarpið BBC.

Í umsögn um dagskrárliðinn á vef The Guardian segir að Andri Snær muni leiða hlustendur í kaldranalegt en hrífandi ferðalag um íslensku jólahátíðina, fyrirrennara hinna kristnu jóla.

Þá segir að íslenskar ömmur noti þjóðsögur enn þá til að skjóta yngri kynslóðum skelk í bringu. Grýla, ófrýnileg móðir jólasveinanna, er sérstaklega tekin fyrir en hún er einmitt fræg fyrir að leggja sér óþekk börn til munns.

„Það var ekki margt sem hægt var að gera ef einhver ráfaði út í myrkrið svo þessar sögur verkuðu eins og ósýnileg girðing,“ er haft eftir Andra Snæ í umfjölluninni en hann segist sjálfur hafa verið logandi hræddur við bæði Grýlu og jólasveinana.

Þátturinn verður á dagskrá Radio 4 annað kvöld klukkan 20.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×