Innlent

Framlög lækka þvert á stjórnarsáttmálann

Sveinn Arnarsson skrifar
Áfangastaðaáætlun landshlutasamtaka er í uppnámi verði ekki brugðist við lækkandi fjárframlagi ríkis.
Áfangastaðaáætlun landshlutasamtaka er í uppnámi verði ekki brugðist við lækkandi fjárframlagi ríkis. VÍSIR/ERNIR
Framlög ríkis til markaðsstofa landsbyggðanna lækka í fjárlögum Bjarna Benediktssonar um 11 milljónir króna. Í frumvarpi Benedikts Jóhannessonar var framlag til markaðsstofa landsbyggðanna 91 milljón en er 80 milljónir í nýju frumvarpi ríkisstjórnarinnar.

Samt sem áður stendur í stjórnarsáttmála flokkanna þriggja að efla eigi markaðsstofurnar Markaðsstofur landshlutanna eru sex talsins og eru þær staðsettar á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Reykjanesi og Suðurlandi.

Hlutverk þeirra er að samræma markaðs- og kynningarmál í ferðaþjónustu og vinna þær með 780 fyrirtækjum og 65 sveitarfélögum.

„Þetta horfir ekki vel við mér og ég vona að þetta verði lagað í meðförum þingsins. Það skiptir miklu máli að við fáum hækkun frá fyrra ári,“ segir Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands. „Við áttum von á að geta haldið áfram í verkefnum um áfangastaðaáætlun og að það yrði fjármagnað áfram. Við eygðum von um að tvö stöðugildi yrðu að fullu fjármögnuð af ríki en það næst ekki ef af þessu verður.“

Ekki í samræmi við sáttmálann

Markaðsstofurnar reiða sig að miklu leyti á sjálfsaflafé og styrki en einnig eru þær með þjónustusamninga við sveitarfélög. Að mati Arnheiðar er einnig eðlilegt að ríkið komi kröftuglega inn í þetta starf til að búa til stoðkerfi fyrir ferðaþjónustu á landsbyggð- inni. „Miðað við það sem stendur í stjórnarsáttmálanum þá er fjárlagafrumvarpið ekki í samræmi við þau orð,“ bætir Arnheiður við.

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, nýr þingmaður Samfylkingarinnar í NA-kjördæmi segir þetta slæmt fyrir það starf sem unnið er í ferðaþjónustu um allt land. „Það er skrýtið að fjármagnið minnki á milli fjárlagafrumvarpa Benedikts Jóhannessonar og Bjarna Benediktssonar þegar ákvæði um eflingu landshlutasamtakanna er komið inn í stjórnarsáttmála. Það er lítil efling í því að skerða fjármagnið til þeirra,“ segir Albertína

Árétting:Framlög til Markaðstofa landshlutanna verða 91 milljón krónur þegar upp er staðið samkvæmt ráðuneyti ferðamála. Þessu verður úr bætt og lagað fyrir aðra umræðu fjárlaga í þinginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×