Fótbolti

Griezmann baðst afsökunar á að mála sig svartan

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Myndin sem Griezmann birti á Instagram-síðu sinni en eyddi svo.
Myndin sem Griezmann birti á Instagram-síðu sinni en eyddi svo.
Antoine Griezmann, leikmaður Atletico Madrid og franska landsliðsins, baðst afsökunar vegna myndar sem hann birti á Instagram-síðu sinni í gær.

Griezmann klæddi sig upp sem leikmaður Harlem Globetrotter-körfuboltaliðsins í gær og málaði sig svartan þar að auki.

Í fyrstu svaraði hann gagnrýnisröddunum með því að biðja fólk um að róa sig enda væri hann mikill stuðningsmaður Globetrotters. Hann gerði þetta af virðingarskyni við liðið.

En stuttu síðar baðst hann afsökunar og eyddi myndinni af samfélagsmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×