Jól

Jólatréð í forgrunni

Vera Einarsdóttir skrifar
Jana Rut er svokallaður "event og wedding planner“ og "event decor professional“. Hún tekur að sér að skipuleggja veislur.
Jana Rut er svokallaður "event og wedding planner“ og "event decor professional“. Hún tekur að sér að skipuleggja veislur. MYNDIR/ANTON

Jana Rut Magnúsdóttir er mikið jólabarn og skreytir mikið. Hún hefur gaman af því að skreyta jólaborð en reynir þó að stilla skreytingunum í hóf til að það sé pláss fyrir matinn. Þessi borðskreyting er innblásin af jólatrénu og öllu sem því fylgir.

Jana Rut er lærður stílisti og „event og wedding planner“ frá Qc Event planning School í Kanada. Hún hefur því eðli málsins samkvæmt gaman af því að skipuleggja og skreyta fyrir alls kyns uppákomur og veislur. Hún er mikið jólabarn og býr til heilu jólaþorpin á heimilinu. Henni þykir ekki síður gaman að skreyta jólaborðið en reynir þó að stilla skreytingunum í hóf til að það sé pláss fyrir mat og kræsingar. 

„Ég reyni að hafa skrautið þannig að hægt sé að færa það til án mikillar fyrirhafnar.“

Alltaf nýtt þema

Jana reynir yfirleitt að leggja upp með eitthvert þema og að þessu sinni ákvað hún að leika sér með jólatréð og allt sem fylgir því. Á borðinu eru því jólatré, pakkar og jólakúlur eins og heyrir til. 

Merkispjöldin festir hún á þar til gerðar jólakúlur sem er hægt að opna og fylla af skrauti. Inn í þær setur hún stjörnur úr skrautpappír sem hún gataði með stjörnugatara. Á hverjum diski er svo pakki til að opna fyrir mat. 

„Vinkona mín var alltaf með þá hefð þegar hún var lítil og ég hef reynt að koma henni að hjá foreldrum mínum, enda léttir hún aðeins á biðinni.“

Merkimiða­kúlurnar fást í versluninni Panduro í Smáralind. Þær er hægt að opna og fylla með skrauti að eigin vali.

Leynivopnað notað

Jana lumar svo á leynivopni þegar kemur að því að binda slaufur á pakkana. 

„Ég komst að því þegar ég ákvað að binda saman hnífapör fyrir 140 manna brúðkaup að ég, eins og flestir aðrir, hef alltaf gert það vitlaust. Galdurinn er að útbúa lykkju og setja bandið yfir hana í staðinn fyrir undir. Þá verður slaufan rétt, böndin jöfn og snúa niður í stað þess að annað fari upp og hitt niður eins og algengast er. Það flýtir umtalsvert fyrir. Það er líka miklu fallegra að gera þetta á þennan hátt,“ segir Jana en skaufuna má sjá á myndunum.

Jana segir galdurinn við að binda slaufu þannig að hún verði rétt með böndin niður að útbúa lykkju og setja bandið yfir hana í stað þess að fara með það undir.

Sniðugar lausnir

Jana heldur úti heimasíðunni jana­rut.is, þar sem hún er með ýmsar sniðugar lausnir, og Facebook-síðunni janarut.is.



×