Fótbolti

Eiður Smári kann enn að skora mörk │ Myndband

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Eiður Smári lék í sex ár með Chelsea og varð tvisvar sinnum Englandsmeistari með liðinu.
Eiður Smári lék í sex ár með Chelsea og varð tvisvar sinnum Englandsmeistari með liðinu. vísir/getty
Eiður Smári Guðjohnsen tók fram fótboltaskóna að nýju á dögunum.

Fyrrum landsliðsmaðurinn, og að margra mati besti knattspyrnumaður Íslandssögunnar, gaf það út í viðtali við Guðmund Benediktsson í haust að hann væri hættur í fótbolta.

Hann kann þó enn ýmislegt fyrir sér þó að keppnisferillinn sé búinn, og mun væntanlega vera út ævina að leika sér með knöttinn.

Eiður tók þátt í verkefni á vegum Sure, styrktaraðilum Chelsea, þar sem hann og fleiri fyrrum leikmenn Chelsea tóku þátt í skotkeppni.

Eiður gerði sér lítið fyrir og smellti boltanum laglega í samskeytin, en hann setti myndband af þessu á Twitter í dag.



 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×