Menning

Kunnugleg jólalög lenda í djasshakkavélinni

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Feðginin Anna Gréta og Sigurður nota hvert tækifæri sem gefst til að spila djass saman.
Feðginin Anna Gréta og Sigurður nota hvert tækifæri sem gefst til að spila djass saman. Mynd Magnús Andersen
Við munum fara misvel með ýmsa þekkta jólasmelli, bæði gamla og nýrri, popp og djass. Það er svo mikið af tónlist sem tilheyrir þessum árstíma sem gaman er að fara með í ýmsar áttir,“ segir djassarinn Sigurður Flosason sem leiðir jóladjasssveit Flosason fjölskyldunnar á Kexi Hosteli í kvöld.

Hann nefnir lögin Jólin eru að koma, Ég hlakka svo til, Ó Grýla, Þú komst með jólin til mín og fleiri kunnugleg lög sem munu lenda í djasshakkavélinni og kannski aldrei bíða þess bætur, að sögn Sigurðar. „Jólakötturinn verður líka fyrir djassofbeldi og það er óvíst að jólasveinarnir beri nokkurn tíma aftur sitt barr,“ segir hann hlæjandi.

Með Sigurði er Anna Gréta dóttir hans, píanóleikari, og auk þeirra feðgina er sveitin að þessu sinni skipuð þeim Þorgrími Jónssyni og Gunnlaugi Briem, sem Sigurður titlar jólasvein og jólakött!

Anna Gréta býr í Stokkhólmi. Þar er hún á fjórða og síðasta ári í framhaldsnámi í djasspíanóleik en er komin heim í jólafrí. „Við reynum alltaf að nota tækifærin þegar við hittumst og spila saman, ýmist hér heima eða úti. Við höfum komið fram í klúbbum í Stokkhólmi og í sumar vorum við í seríu með djass í almenningsgörðum, það er gaman þegar gott er veður en minna gaman þegar mikið rignir sem gerist  stundum líka.“

Ekki segir Sigurður Önnu Grétu þó koma með sænskt þema inn í Litlu Kexdjassjólin heldur sé dagskráin meira íslensk/amerísk. „Þetta eru allt lög sem sungin eru með íslenskum textum en eru nú flutt instrúmentalt og spunnið út frá þeim eins og fara gerir í djassinum, settir einhverjir nýir ryþmar og svoleiðis.“ Spurður hvort allt sé blandað á staðnum svarar hann: „Nei, þetta eru litlar útsetningar sem við höfum gert og endurhljómsett, æft og undirbúið – rándýrt alveg! En alltaf er viss partur sem gerist á staðnum, eðli málsins samkvæmt.

Kex Hostel er á Skúlagötu 28. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 og aðgangur er ókeypis.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×