Körfubolti

Tryggvi tróð er hann fékk loksins mínútur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tryggvi Snær Hlinason
Tryggvi Snær Hlinason Vísir/EPA
Tryggvi Snær Hlinason minnti rækilega á sig þegar hann fékk loksins mínútur með spænska liðinu Valencia í kvöld.

Valencia mætti Real Madrid í Spánarslag í Evrópudeildinni í körfubolta.

Real fór með nokkuð öruggan sigur 91-74, en leikurinn var spennandi framan af áður en Real Madrid sigldi fram úr.

Tryggvi fékk fjórar mínútur af spilatíma þar sem hann setti niður eina troðslu og eitt vítaskot.

Valencia hefur ekki átt góðu gengi að fagna í Evrópudeildinni, aðeins unnið þrjá af þrettán leikjum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×