Innlent

54 bítast um þrjár stöður hjá RÚV

Jakob Bjarnar skrifar
22 drógu umsókn sína til baka þegar fyrir lá að nöfn umsækjenda yrðu gerð opinber.
22 drógu umsókn sína til baka þegar fyrir lá að nöfn umsækjenda yrðu gerð opinber.
Nýlega voru auglýst þrjú framkvæmdastjórastörf hjá RÚV. Alls bárust 76 umsóknir um þessi störf, segir í svari stofnunarinnar við fyrirspurn Vísis.

Hins vegar brá svo við að þegar RÚV gerði umsækjendum grein fyrir því að til stæði að veita upplýsingar um hverjir hefðu sótt um kusu 22 umsækjenda að draga umsókn sína til baka.

Ráðningaferlið stendur yfir og innan skamms verður tilkynnt um hverjir hreppa umræddar stöður sem eru Dagskrárstjóri númiðlunar og Rásar 2, Framkvæmdastjóri framleiðslusviðs og Framkvæmdastjóri miðla.

Dagskrárstjórastaðan

Um stöðu Dagskrárstjóra númiðlunar og Rásar 2 eru nú 18 umsækjendur, þeirra á meðal nokkrir sem eru kunnir af störfum sínum innan RÚV svo sem Baldvin Þór Bergsson og útvarpsmennirnir Ólafur Páll Gunnarsson og Matthías Már Magnússon. Þá sækir Glúmur Baldvinsson M.Sc. í alþjóðasamskiptum um allar stöðurnar þrjár og Rúnar Freyr Gíslason leikari um tvær þeirra.

Agnes Marinósdóttir - Deildarstjóri

Anna Claessen - Markaðsstjóri

Baldvin Þór Bergsson - Frétta- og dagskrárgerðarmaður

Davíð Már Gunnarsson - Verkefnastjóri

Eldar Ástþórsson - Upplýsingafulltrúi

Glúmur Baldvinsson - M.Sc. í alþjóðasamskiptum

Gylfi Þór Þorsteinsson - Rekstrarstjóri

Halldóra Ósk Reynisdóttir - Innanhússarkitekt

Hallur Guðmundsson - Miðlunar- og samskiptafræðingur

Matthías Már Magnússon - Tónlistarstjóri

Ólafur Páll Gunnarsson - Útvarpsmaður

Rannveig Hafsteinsdóttir - Tölvunarfræðingur

Rebekka Blöndal - M.A. í blaða- og fréttamennsku

Rúnar Freyr Gíslason - Leikari

Sigurður Ásgeir Árnason - Framkvæmdastjóri

Steindór Gunnar Steindórsson - Markaðs- og kynningarfulltrúi

Svavar Helgi Jakobsson - Fjölmiðlafræðingur

Unnur Aldís Kristinsdóttir - Sölu- og markaðsstjóri

Framkvæmdastjóri framleiðslusviðs

Um stöðu framkvæmdastjóri framleiðslusviðs eru 17 umsækjendur.

Alfreð Sturla Böðvarsson - Leikmynda- og ljósahönnuður

Birna Ósk Hansdóttir - Framleiðslustjóri

Elín Sveinsdóttir - Dagskrárframleiðandi

Gísli Berg Guðlaugsson - Framkvæmdastjóri

Glúmur Baldvinsson - M.Sc. í alþjóðasamskiptum

Guðrún Lilja Magnúsdóttir - Samhæfingarstjóri

Gunnlaugur Þór Pálsson - Framleiðandi / leikstjóri

Halldór Þorgeirsson - Kvikmyndaframleiðandi

Hólmgeir Baldursson - Framkvæmdastjóri

Jóhann Ólafur Kjartansson - Leikstjóri og framleiðandi

Sólveig Dagmar Þórisdóttir - Hagnýtur menningarmiðlari

Steinunn Þórhallsdóttir - Ferla- og skipulagsstjóri

Svava Lóa Stefánsdóttir - Framleiðandi

Úlfur Helgi Hróbjartsson - Framkvæmdastjóri

Vera Sölvadóttir - Framleiðslustjóri

Vigfús Ingvarsson - Sérfræðingur

Framkvæmdastjóri miðla

19 sækja svo um stöðu framkvæmdastjóra miðla. Þeir eru eftirfarandi:

Agnes Marinósdóttir - Deildarstjóri

Birgir Sigfússon - Framkvæmdastjóri

Birkir Guðlaugsson - Viðskiptafulltrúi

Brynjólfur Ægir Sævarsson - MBA

Eldar Ástþórsson - Upplýsingafulltrúi

Glúmur Baldvinsson - M.Sc. í alþjóðasamskiptum

Guðmundur Gunnarsson - Framkvæmdastjóri

Gylfi Þór Þorsteinsson - Rekstrarstjóri

Hólmgeir Baldursson - Framkvæmdastjóri

Jóna Finnsdóttir - Framkvæmdastjóri

Karl Pétur Jónsson - MBA

Liam Joseph Davies - B.A. í blaða- og fréttamennsku

Ólafur Freyr Frímannsson - Lögmaður

Ólafur Ólafsson - Viðskiptafræðingur

Rúnar Freyr Gíslason - Leikari

Sólveig Dagmar Þórisdóttir - Hagnýtur menningarmiðlari

Svava Lóa Stefánsdóttir - Framleiðandi

Viðar Bjarnason - Verktaki

Þór Ómar Jónsson - Leikstjóri / framleiðandi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×