Tónlist

Risa klúbbakvöld Red Bull Music Academy

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Þeir félagar John Talabot og Axel Boman ætla að spila nokkur lög á Húrra í kvöld.
Þeir félagar John Talabot og Axel Boman ætla að spila nokkur lög á Húrra í kvöld.
Elektróníska dúóið Talaboman ætla að leggja dansgólfið á skemmtistaðnum Húrra í rúst í kvöld en þeir munu spila á risa klúbbakvöldi Red Bull Music Academy.

Talaboman til halds og trausts verða DJ YAMAHO, Futuregrapher og russian.girls, allt gæðanöfn úr íslensku senunni sem aðdáendur elektrónískar tónlistar ættu allir að kannast við.

Talaboman eru þeir John Talabot og Axel Boman. Þeir gáfu út sína fyrstu breiðskífu á árinu, The Night Land, og hafa þeir verið að ferðast um allan heim til að spila hana fyrir fólkið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×