Markalaust hjá Real

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ronaldo var líklega ekki kátur eftir leikinn í kvöld
Ronaldo var líklega ekki kátur eftir leikinn í kvöld vísir/getty
Real Madrid og Athletic Bilbao skildu jöfn í markalausu jafntefli í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Spánarmeistararnir náðu ekki að nýta sér það að Barcelona hafði gert jafntefli fyrr í dag og eru því enn átta stigum frá toppsæti deildarinnar.

Fyrirliðinn Sergio Ramos var sendur í sturtu í 24. skipti á ferlinum er hann fékk sitt annað gula spjald á 87. mínútu fyrir brot á Aritz Aduriz.

Madrid var með boltann 65 prósent leiktímans og átti nítján skot, en aðeins fjögur þeirra hittu á rammann.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira