Sport

HM fatlaðra í sundi hefst á morgun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Íslenski hópurinn við æfingar í Mexikó.
Íslenski hópurinn við æfingar í Mexikó. mynd/íf
Heimsmeistaramót fatlaðra í sundi í 50 metra laug hefst í Mexíkó á morgun, laugardaginn 2. desember.

Ísland teflir fram fjórum keppendum á mótinu en þau eru Sonja Sigurðardóttir, Thelma Björg Björnsdóttir, Róbert Ísak Jónsson og Már Gunnarsson. Már, Róbert og Thelma keppa öll á fyrsta keppnisdegi á morgun.

Mexíkóborg er í mikilli hæð yfir sjávarmáli svo hópurinn hefur nýtt síðustu daga til að venjast aðstæðum og æfa. Helena Hrund Ingimundardóttir aðalfararstjóri í ferðinni segir aðstæður góðar og kveður hópinn spennan fyrir því að hefja leik.

Laugardagur 2. desember:

Már Gunnarsson, S12 - undanrásir 100m baksund kl. 10.05 á staðartíma. 16.05 á Íslandi.

Róbert Ísak Jónsson, S14 - 100m bringusund úrslit - kl. 9.27 á staðartíma. 15.27 á Íslandi

Thelma Björg Björnsdóttir, S6 - 400m skriðsund, 19.13 á staðartíma. 01.13 á Íslandi.

Mótið sjálft átti að fara fram um mánaðarmótin september og október á þessu ári en fresta varð mótahaldinu sökum náttúrhamfaranna sem dundu á Mexíkó með jarðskálftunum.

Heimamenn héldu engu að síður ótrauðir áfram í samstarfi við Alþjóða Ólympíuhreyfingu fatlaðra (IPC) og nú er mótið brostið á en nokkur afföll hafa verið á meðal þátttökuþjóða og því aðeins færri keppendur við mótið en upphaflega var gert ráð fyrir.

Sem dæmi eru sterkar sundþjóðir á borð við Ástralíu og Bretland sem sáu sér ekki fært að taka þátt eftir að breytt dagsetning á mótinu var auglýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×