Erlent

Mjótt á munum í kosningabaráttu í Alabama eftir ásakanir um barnaníð

Kjartan Kjartansson skrifar
Nokkrar konur hafa stigið fram og lýst því hvernig Moore eltist við þær þegar þær voru unglingar eða ungar konur. EIn sagðist hafa verið 14 ára þegar Moore átti við hana kynferðislegt samneyti.
Nokkrar konur hafa stigið fram og lýst því hvernig Moore eltist við þær þegar þær voru unglingar eða ungar konur. EIn sagðist hafa verið 14 ára þegar Moore átti við hana kynferðislegt samneyti. Vísir/AFP
Munurinn á fylgi frambjóðendanna tveggja til öldungadeildar Bandaríkjaþings í Alabama er innan skekkjumarka í nýrri könnun Washington Post. Roy Moore, frambjóðandi repúblikana, hefur verið sakaður um kynferðislegt samneyti við unglingsstúlkur.

Demókratinn Doug Jones mælist með 50% fylgi gegn 47% Moore í könnuninni. Skekkjumörk könnunarinnar eru hins vegar 4,5 prósentustig. Kosið verður um þingsætið 12. desember.

Moore var með forskot í skoðanakönnununum áður en ásakanir um aðhann hefði haft uppi kynferðislega tilburði og elst við unglingsstúlkur og ungar konur þegar hann var saksóknari á fertugsaldri. Moore er rúmlega sjötugur.

Stuðningur við hann hefur minnkað verulega jafnvel þó að Alabama hallist verulega að repúblikönum. Donald Trump vann kjörmenn ríkisins í forsetakosningunum með hátt í þrjátíu prósentustiga mun.

Forsetinn veitir óbeinan stuðning

Könnunin leiðir í ljós að aðeins rúmlega þriðjungur líklegra kjósenda trúi ásökununum gegn Moore. Á móti segjast 37% óviss eða hafa enga skoðun og 28% segja að Moore hafi ekki gert það sem hann er sakaður um.

Aðrar kannanir síðustu daga hafa bent til þess að Moore væri aftur að síga fram úr Jones eftir fylgistapið. Þrjár kannanir sem birtar voru í vikunni sýndu Moore með 5-6 prósentustiga forskot, að því er kemur fram í frétt Five Thirty Eight.

Nokkrir leiðtogar repúblikana hafa sagst trúa konunum og hvatt Moore til að stíga til hliðar. Donald Trump forseti hefur hins vegar sagt að hlusta verði á neitanir Moore og hvatt stuðningsmenn sína til að styðja ekki Jones. Trump hefur þó ekki gengið svo langt að lýsa yfir stuðningi við Moore með beinum hætti.


Tengdar fréttir

Slíta tengsl sín við Moore

Landsnefnd Repúblikanaflokksins ætlar að tengsl sín við Roy Moore, frambjóðenda flokksins til öldungadeildasætis Alabama. Moore hefur verið sakaður um að hafa brotið kynferðislega á táningsstúlkum á árum áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×