Innlent

Sameiningarviðræðum slitið vegna áhugaleysis

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Sameiningarviðræðum á milli átta sveitarfélaga á  Suðurlandi hefur verið slitið vegna áhugaleysis um sameiningu. Ástæðan er fyrst og fremst góður rekstur sveitarfélaganna.

Boðað var til opins fundar í Tryggvaskála á Selfossi þar sem niðurstaða nefndar um sameiningu allra sveitarfélaganna átta í Árnessýslu var kynnt, auk þess sem fulltrúar ráðgjafasviðs KPMG lögðu fram skýrslu  um kosti og galla sameiningu sveitarfélaganna. Rynnu sveitarfélögin átta undir sömu sæng yrði til um 16 þúsund manna sveitarfélag. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að stoppa hér, ekkert verður af sameiningu sveitarfélaganna að svo stöddu.

„Menn voru kannski að koma svolítið: Heyrðu við höfum það kannski reyndar bara ágætt og okkur liggur ekkert á að sameinast. Það er svona kannski ein af skýringunum fyrir því að það dró að einhverju l eyti úr áhuganum á sameiningu,“ sagði Sævar Kristinsson, ráðgjafi hjá KPMG á fundinum í Tryggvaskála.

Formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga er svekktur með að ekki hafi náðst niðurstaða um sameiningu sveitarfélaganna í þessari atrenu.

„Ég held að við eigum náttúrulega að horfa til sameiningar sveitarfélaga, það er engin önnur lausn í þessu miðað við þennan gríðarlega fjölda byggðasamlaga sem við erum að taka þátt í og auknar kröfur á sveitastjórnarmenn,“ sagði Gunnar Þorgeirsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í samtali við Stöð 2.

„Ég held að menn þurfi bara að fara að horfa til að við þurfum að fara að hafa þetta að atvinnu sem sveitarstjórnarfólk en ekki bara sem hobbý, þetta er ekkert hobbý lengur.“

Þá sá Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, litla ástæðu til þess að sameina sveitarfélögin.

„Það gengur mjög vel í öllum sveitarfélögum sem hér um ræðir og það kallar fátt á breytingar. Það er íbúafjölgun, það er uppbygging, ferðaþjónusta og atvinnuvegir í blóma, þannig að það er ekkert skrýtið þó að sveitarstjórnarmenn sem og íbúar sjá ekki ástæðu til að breyta,“ sagði Aldís.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×