Sport

Snorri endaði í 33. sæti

Dagur Lárusson skrifar
Snorri í dag.
Snorri í dag.
Snorri Eyþór Einarsson endaði í 33. sæti í heimsbikarmóti í 30 km skiptigöngu sem fór fram í Lillehammer í Noregi en Snorri var meðal 72 keppenda.

Skiptigangan fór þannig fram að byrjað var að ganga 15 km með hefðbundinni aðferð og síðan 15 km með frjálsri aðferð.

Snorra gekk heldur brösuglega í byrjun þar sem hann hóf leik með síðustu mönnum og því erfitt að komast framarlega en að loknum hefðbundna hlutanum var hann í 52. sæti.

Í frjálsa hlutanum átti Snorri frábæra göngu og endaði að lokum í 33. sæti og þess vegna rétt missti Snorri af heimsbikarstigum en aðeins efstu 30 keppendurnir fá þau. Þetta var þriðji besti árangur Snorra í vetur á sterkustu mótaröð í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×