Erlent

Ástralskur þingmaður bað kærasta síns í miðri ræðu

Atli Ísleifsson skrifar
Hinn 37 ára Tim Wilson er þingmaður Frjálslynda flokksins.
Hinn 37 ára Tim Wilson er þingmaður Frjálslynda flokksins. Vísir/AFP
Umræða er hafin í ástralska þinginu um hvort lögleiða eigi hjónabönd samkynhneigðra eftir að mikill meirihluti greiddi atkvæði með tillögunni í óbindandi þjóðaratkvæðagreiðslu í landinu 7. nóvember síðastliðinn.

Markmið þingsins er að atkvæðagreiðslu um málið skuli lokið innan tveggja vikna, áður en þingmenn fara í jólafrí.

Þingmaðurinn Tim Wilson nýtti tækifærið og bað kærasta síns í ræðu sinni í gær. Undir lok ræðunnar sinnar sagði þingmaðurinn að það væri bara eitt eftir í stöðunni og sneri hann sér svo að þingpöllunum. „Ryan Patrick Bogler, viltu giftast mér?“

Bogler hikaði ekki og svaraði spurningunni játandi líkt og sjá má að neðan.

Þingmenn í salnum klöppuðu fyrir Wilson og Bogler og óskaði þingforsetinn þeim til hamingju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×