Viðskipti innlent

Hugbúnaðarfyrirtækið Meniga í samstarf með einum stærsta banka Spánar

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Georg Lúðvíksson er forstjóri Meniga og einn stofnenda.
Georg Lúðvíksson er forstjóri Meniga og einn stofnenda. vísir/valli
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur samið við einn stærsta banka Spánar um samstarf í innleiðingu netbankalausna Meniga og að bjóða viðskiptavinum bankans persónulegri notendaupplifun. Bankinn sem um ræðir heitir Ibercaja og hafa rúmlega milljón viðskiptavinir hans nú aðgang að hugbúnaði Meniga.

Fyrsta skrefið í innleiðingunni mun leiða af sér nýja og endurbætta snjallsímalausn. Síðar mun bankinn taka í notkun fleiri vörur Meniga þar sem viðskiptavinir koma til með að geta sett upp sjálfvirkt bókhald, borið sig saman við aðra áþekka einstaklingshópa, sett sér markmið í ákveðnum útgjaldaflokkum og þar með einfaldað og haldið betur um heimilisfjármálin sín.

Georg Lúðvíksson, forstjóri Meniga, segir í yfirlýsingu félagsins segir að í þessu felist spennandi tækifæri. „Samskipti fyrirtækja við viðskiptavini fer í auknum mæli fram eftir stafrænum boðleiðum sem opnar á ný og spennandi tækifæri. Bankar eru þar engin undantekning. Með því að innleiða hugbúnað Meniga getur Ibercaja nú átt samskipti við viðskiptavini sína á mun persónulegri hátt. Á sama tíma geta þeir boðið viðskiptavinum sínum upp á betri þjónustu, yfirsýn og innsýn í fjármálin sín og þar með gert viðskiptasambandið mun traustara.“

Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfsmenn í dag um 100. Hugbúnaður Meniga hefur verið innleiddur hjá yfir 70 fjármálastofnunum og er hann aðgengilegur 50 milljón manns í 20 löndum. Meðal viðskiptavina Meniga eru margir stærstu banka heims, þeirra á meðal Santander, Commerzbank, ING Direct og Intesa Sanpaolo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×