Sport

Thelma fékk brons á HM

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Thelma í lauginni.
Thelma í lauginni. mynd/íf
Tveimur keppnisdögum er nú lokið á heimsmeistaramóti fatlaðra í sundi í Mexíkó og hefur íslenski hópurinn þegar landað tveimur verðlaunum.

Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, vann til bronsverðlauna í 100m bringusundi í gær.

Thelma kom að bakka á 1:57.66 mínútum en hún var þriðja í fjögurra sundkvenna úrslitariðli.

Eins og áður hefur komið fram urðu nokkur afföll af þátttökuþjóðum á HM þetta árið vegna náttúruhamfaranna í Mexíkó og því sumir riðlar í keppninni fámennari en oft áður.

Keppnisdagur tvö á HM:

100m bringusund

Thelma Björg Björnsdóttir, 3. sæti - 1:57.66 mín.

50m baksund

Sonja Sigurðardóttir, 6. sæti - 1:03.26 mín.

400m skriðsund

Már Gunnarsson, 5. sæti - 5:11.05 mín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×