Viðskipti innlent

Kaupþing ræður Kviku sem ráðgjafa við sölu á Arion banka

Hörður Ægisson skrifar
Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku en bankinn verður í hópi ráðgjafa Kaupþings við skráningu og útboð Arion banka.
Ármann Þorvaldsson er forstjóri Kviku en bankinn verður í hópi ráðgjafa Kaupþings við skráningu og útboð Arion banka.
Kaupþing hefur gengið frá ráðningu á Kviku banka sem fjármálaráðgjafa í tengslum við sölu á eignarhlut sínum í Arion banka en eignarhaldsfélagið áformar að losa um stóran hluta sinn í bankanum í gegnum almennt hlutafjárútboð og skráningu.

Kaupþing tilkynnti um samkomulagið við Kviku fyrr í dag en Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál, greindi fyrst frá því 22. nóvember síðastliðinn að fjárfestingabankinn yrði í hópi ráðgjafa þegar ráðist yrði í útboð Arion banka. 

Ekkert varð af útboði og skráningu Arion banka í nóvember á þessu ári, eins og áður hafði verið lagt upp með, vegna stjórnarslita og í kjölfarið kosninga til Alþingis sem fóru fram í lok október. Nú gerir Kaupþing ráð fyrir því að útboðið geti farið fram eftir birtingu ársreiknings Arion banka um miðjan febrúar á næsta ári.

Miðað við núverandi eigið fé Arion banka er bókfært virði 57,4 prósenta hlutar Kaupþings í bankanum um 127 milljarðar króna. Það er talsvert meiri hlutur en áformað er að selja í útboðinu en afar sennilegt er að Kaupþing kjósi að halda eftir um 20 til 25 prósenta hlut. Söluferli Kaupþings á Arion banka gengur undir vinnuheitinu Project Cheval Blanc, eða hvítur hestur, samkvæmt heimildum Markaðarins.

Auk Kaupþings og íslenska ríkisins, sem á 13 prósenta hlut sem Bankasýslan heldur utan um, eru stærstu hluthafar Arion banka vogunarsjóðirnir Attestor Capital, Taconic Capital, Och-Ziff Capital og fjárfestingabankinn Goldman Sachs. Keyptu erlendu fjárfestarnir tæplega 30 prósenta hlut í bankanum af Kaupþingi fyrr á árinu fyrir samtals um 49 milljarða. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×