Viðskipti erlent

Winklevoss tvíburarnir stórgræða á bitcoin

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Winklevoss bræður.
Winklevoss bræður. vísir/getty
Tvíburabræðurnir Cameron og Tyler Winklevoss, sem stefndu Mark Zuckerberg, stofnanda Facebook, fjárfestu á sínum tíma í rafeyrinum „bitcoin“ og er hlutur þeirra í dag talinn vera um milljarður dollara – 104 milljarðar króna. Independent greinir frá.

Þeir bræður stefndu Zuckerberg árið 2004 og sögðu hann hafa stolið hugmyndinni að samskiptasíðunni vinsælu. Kröfðust þeir stjórnar yfir fyrirtækinu en varð ekki ágengt. Að lokum gerðu þeir samkomulag upp á 65 milljónir dollara en af þeirri upphæð keyptu þeir bitcoin fyrir 11 milljónir. Þá kostaði hver rafaur 120 dollara eða um 12.500 krónur.  

„Við lítum á bitcoin sem einn besta samskiptavettvanginn,“ var haft eftir Tyler Winklevoss í fyrra.

Gengi bitcoin er sveiflukennt og hefur undanfarin ár risið hratt. Í dag nemur einn bitcoin-aur 11.789 dollurum eða 1,25 milljónum króna.

Bitcoin var upphaflega kynnt af Satoshi Nakamoto árið 2009. Ólíkt hefðbundinni mynt er bitcoin ekki gefið út af banka eða einstaklingum en hægt er að eignast bitcoin-aura með svokallaðri námavinnslu (e. mining) á netinu eins og um verðmætan málm væri að ræða.


Tengdar fréttir

Tvíburar áfrýja ekki úrskurði

Cameron og Tyler Winklevoss, tvíburabræðurnir sem telja sig eiga hugmyndina að Facebook, hafa ákveðið að áfrýja ekki úrskurði Alríkisdómstóls til Hæstaréttar.

Facebook-tvíburarnir ætla ekki að áfrýja

Cameron og Tyler Winklevoss, tvíburabræðurnir sem telja sig eiga hugmyndina að baki Facebook, hafa ákveðið að áfrýja ekki úrskurði Alríkisdómstóls til Hæstaréttar.

Stofnandi Facebook sakaður um að hafa stolið hugmyndinni

Tengslavefurinn Facebook á nú yfir höfði sér málsókn frá stofnendum annars tengslavefs, ConnectU. Þeir segja stofnanda Facebook, Mark Zuckerberg, hafa stolið hugmyndinni frá sér á meðan þau voru saman við nám í Harvard háskóla.

Zuckerberg sleppur frá Fésbókarbræðrum

Alríkisdómur í Bandaríkjunum vísaði í dag frá máli Tyler og Cameron Winklevoss, sem telja sig eiga hugmyndina að baki Facebook. Bræðurnir höfðuðu mál til að rifta sáttargjörð sem þeir gerðu við Mark Zuckerberg, stofnanda vefsíðunnar, vegna deilna um höfundarrétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×